
Gústaf Agnarsson
MINNINGARORÐ - Gústaf Agnarsson (1952-2007)
Þegar við Gústi byrjuðum að æfa lyftingar snemma árs 1970 þá hvarflaði aldrei að manni að árutugum síðar myndi ég pára nokkur minningarorð um hann. Svona er þetta, enginn veit sinn náttstað.Eins og skáldið Sigurður Breiðfjörð orðaði það:
Sínum eigin örlögum
enginn ráðið getur.
Ég er líka í efa um
að það fari betur.
Það er ljóst að með fráfalli Gústafs Agnarssonar er horfinn á braut mikil íþróttaahetja sem verður fyrst og fremst minnst fyrir afrek í lyftingum en einnig í kraftlyftingum og frjálsíþróttum.
Ég minnist þess að þegar við Gústi vorum að spreyta okkur í gamla Ármannskofanum við Sigtún undir leiðsögn Gvendar Sig. og Óskar Sigurpálss. þá vorum við báðir næsta grannir. Gústi var hávaxinn en aðeins um 72kg að þyngd en ég var lítill og léttur um 49kg að þyngd.Báðir áttum við eftir að þyngjast vel um 35-40kg. Munurinn var sá að Gústi gerði það á 2-3 árum en ég á 37 árum!. Gústi tók lyftingarnar snemma föstum tökum bæði vitsmunalega og æfingalega. Hann æfði gífurlega vel og skipulega,eitthvað sem ég spáði ekki í fyrr en 8-9 árum síðar. Gústi varð gífurlega góður sem unglingur í lyftingum og 19 ára fór hann að bæta Íslandsmet Óskars Sigurpálssonar sem vakti mikla athygli hér á landi. Í framhaldinu varð hann síðan Norðurlandameistari unglinga í þungavigt 1972 en þá snaraði hann 140kg og jafnhenti 167,5kg. Hann snaraði einu sinni yfir heimsmeti unglinga 160,5kg en fékk það ekki staðfest vegna reglubreytinga.Gústi varð einnig tvisvar Norðurlandameistari fullorðinna og á öðru þessara móta gerði hann sér lítið fyrir og páverklíndi (í einum rykk upp á brjóst) heil 200kg! en aldrei hafði slíkt sést á Norðurlöndum og víðar
.Gústi var einnig valinn í Evrópu úrval lyftingamanna,einn Norðurlandabúa sem þótti mikil upphefð og var hann oft á lista yfir 10 bestu íþróttamenn Íslands. Bestu þyngdir Gústa í keppni voru 170 í snörun og 210kg í jafnhendingu. Hvorutveggja Íslandsmet og enn það mesta sem nokkur íslendingur hefur lyft í þessum greinum og reyndar enginn nálgast það. Gústi varð margoft Íslandsmeistari í lyftingum og kraftlyftingum. Hann og Óskar Sigurpálsson eru þeir einu sem hafa verið sterkastir manna hér á landi í einstakri grein beggja íþróttanna. Árið 1975 lyfti Gústi sérlega glæsilega 315kg Íslandsmeti í réttstöðulyftu á Meistaramóti KR og varð það mönnum eftirminnilegt.
Íþróttaferill Gústa náði einnig til frjálsíþrótta þar sem hann varð um árabil ósigrandi í langstökki án atrennu og endaði Íslandsmeta feril sinn þar með stökki upp á 3,44 m. Það met stóð í mörg ár þar til annar lyftinga og kraftlyftingakappi Flosi Jónsson bætti það í 3,45 m. og stendur það enn óhaggað. Þegar íþróttaferli Gústa lauk 1980 fór hann að reka þekkta Likamsræktarstöð í Kjörgarði með góðvini sínum Gvendi Sig. Þeir vinirnir voru miklir hugsuðir á ýmsum andlegum sviðum og studdi Gvendur Gústa mikið á lífsleiðinni,jafnt á meðan keppnisferlinum stóð og eftir hann eins og hann hefur gert við undirritaðan og verður það seint fullþakkað.
Við samferðamenn Gústafs Agnarssonar munum aldrei gleyma þessum afreksmanni sem æfði meira en flestir og fór sínar eigin leiðir og náði frábærum árangri. Vonandi mun nafn hans geymast um ókomna tíð.
KE.