
JÓLALJÓS
Þessi ljós munu lýsa
og léttum sálum vísa
veginn til efstu hæða.
Það er raun að rata
um regindjúp innstu hvata
á meðan hjörtun blæða.
Á höfgu ljósi að halda
hver sál þarf um dali kalda,
því eftir fjöru mun flæða.
Hvert eitt lítið ljós
er lýsir upp höll og fjós,
ber hamingju innan klæða.
KE.